Eitt og annað
15.11.2008 | 20:56
Jæja, svo eru tvö afmæli næstum því að baki . Arndis var þann 10.unda og ætlaði að halda afmæli fyrir leikskóla sinn en litla stelpan gerðist veik , með magaflensu og ælu, svo ákveði var að fresta afmælispartýinu
. Hún heldur það svo í næstu viku í staðinn
.
Andrias var þann 14.anda og var með afmæli fyrir bekkjafélaga sína í gær . Ég kom heim úr vinnuni kl.17. og byrjaði að baka og skreyta og var búðinn með allt voða seint sem kl. 2 um nóttina daginn fyrir stóra daginn hans
. En ég átti svo að fara á fætur aftur kl. 5. til að fara í vinnu. Fékk fri frá vinnuni kl. 13. og afmælið átti að byrja kl. 14. Svo það var bara að drýfa sig heim hehe. Við Vigfús náðum í strákana í skólann ( bara strákapartí ) og löbbuðu með þá heim í veislusalinn, það er ekkert spaug að halda stjórn á 9 stk. 7 ára vitleysingum hehe
. Andrias var búðinn að panta draugaþema í partýið, svo þeir voru allir klæddir út
. ( draugar, afturgöngur, skrímsli ofl.
) Afmælið heppnaðist frábærlega, strákarnir voru mjög hrifnir af öllu og voru alveg í skýunum yfir öllu eins og það lagði sig
. Mamma bakaði pylsuhorn sem líktust beinum, og ég náði að skera stikki af hala dreka sem átti hér leið um, einnig var þar eitt höfuð með salgætisaugum sem vakti mikla athygli
. Ekki mikið eftir til að taka með upp
.
Ég var svo búin að skila einni stórri ritgerð um Alzheimers og Vitglöp ( Dementia ) Og vitið þið, ég fékk sko 10. í einkun fyrir hana . Er bara mjög ánægð með þetta
. Var með til að greina eina konu, saman með sálfræðingi og læknir. Var þetta sko mjög áhugavert og hugvekjandi, en krafði mikla vinnu, en báðir læknarnir voru ánægðir með mitt álit á sjúkdómnum og minni greiningu á honum
.
Vigfús skrifar: Er nú ekki vanur að blogga og ætla mér ekki heldur að vera með eitthvað kjaftæði og væl yfir hinu og þessu eins og margir aðrir, ( sem enginn nennir að lesa, ertu einn af þeim, svo farðu fram hjá skakka græna tekstanum og byrjaðu á hinum aftur ) , en ég ætla mér nú að leyfa mér að hæla Margith konu minni þar sem hún hefur staðið sig hreint og beint frábærlega í skólanum og í námsvinnuni. Ég vil gjarnan segja ykkur frá því að náminu hefur verið breytt, og á ég við Breytt, í stórum stöfum.
Hennara frammistaða í náminu og vinnunni hefur gert það að eitt af stærstu Dagblöðunum í Danmörku hefur ákveðið að taka viðtal við hana og fjalla um hana og hvernig henni lýst á nýju útgáfunni af náminu, henni hefur líka gengið vel. Hún er að vinna og læra um hvernig það er að vera gamall, fatlað, geðfatlað, með heilasvik eftir slys eða fæðingu ofl, og hvernig það er að meðhandla eldri borgara í dag, jú einhvern tíman verðum við jú öll gömul og kannski kolrugluð, og hver veit nema við endum þar sjálf einhvern daginn . Verði okkur að góðu
.
Svo verður haldin afmælisveisla fyrir fjölskylduna á morgun , bara eitthvað lítið með kökur og kaffi
. Þið eru öll velkomminn að mæta
. Bara svo þið vitið er Sterling farið á hausin...kannski dýrt að mæta í kaffi
...he he.
Erum svo bara að telja dagana niður til skurðaðgerðina hjá Vigfúsi , förum bæði snemma um morguninn þar sem Vigfús fer undir skurð kl 8
. Eftir á ratar hann örugglega ekki heim eftir deyfinguna þannig að ég fer með honum, hann verður hvort eð er High
. Nenni ekki að leita að honum í Þýskalandi ef hann keyrir of langt með lestini
.
Kveðjur frá Danmörk
Athugasemdir
Gaman að lesa hversu vel þér hefur gengið í náminu
Þetta hefur verið spennandi afmælisveisla hjá syni ykkar.
Vigfús ég er ekki hissa þótt þú sért stoltur af kerlu þinni 
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.11.2008 kl. 22:16
Glæsilegur árangur Margith mín
Þú mátt svo sannarlega vera ánægð og Fúsi minn til lukku með frúna þín ekkert smá hörkukvendi þarna á ferð
Endilega láttu okkur fylgjast með þegar greinin birtist með viðtalinu við hana það er sko mikill heiður fyrir hana
En og aftur til hamingju með börnin var að tala við mömmu þína(Fúsi) hún sagði mér frá þemanum í afmælinu eins gott að danir frétti ekki af útlimum sem étnir eru hehe
Gangi þér vel í aðgerðinni og stórt knús á ykkur öll
Kveðja stolta frænka á suðurnesjum
Hrönn Jóhannesdóttir, 15.11.2008 kl. 23:30
Mann setur hljóðan - svo er maður að væla yfir smotterí. Frábært hjá þér Margith og ykkur öllum. Og Fúsi minn endilega hentu inn einni og einni færslu svo til tilbreytingar. Og mikið vildi ég gæta skotist til ykkar í kaffi en því miður er ég smá upptekin.
kv frá Akureyri
Páll Jóhannesson, 16.11.2008 kl. 10:45
Gaman að lesa hvað þú stendur þig vel í náminu Margith
enda dugnaðarkona á ferð..
Það væri nú frábært að geta kíkt í afmæliskaffi til ykkar.. verst að það er svona langt til ykkar en við kíkjum einhverntíman í heimsókn þegar daman verður orðin aðeins eldri
Hafiði það alveg rosalega gott...
kveðja frá Akureyri...
Lena,Jói og litla daman (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 13:22
Sæl öllsömul:) til hamingju með frábæran árangur og þetta allt saman bara. Mjög gaman að lesa þessa færslu. Vonandi fer Fúsi að koma sterkur inn líka hehe. Gangi ykkur öllum mjög vel. Ég verð bara að fá að eiga afmæliskaffi inni þar til ég kem næst til Danmerkur:) Knús úr borginni.
Ólöf (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 16:59
Til hamingju með allt saman, alltaf gaman að lesa eitthvað jákvætt
Hefði verið gaman að koma í kaffi en svona er þetta bara, kíkjum kannski einhvern tímann á ykkur
Gangi þér vel í aðgerðinni Fúsi minn & þér í náminu áfram Margith, glæsilegt hjá þér
Hafið það gott & knús & kossar til ykkar allra 
Bestu kveðjur að norðan
Dagbjört Pálsdóttir, 16.11.2008 kl. 19:46
Til hamingju með allt saman. Ekki amalegt fyrir mig hvað margir í fjölskyldunni hafa áhuga á að sinna öldruðum, fötluðum og þeim sem minna mega sín. Ég er mjög ánægð og montin með ykkur þetta unga fólk. Var búin að frétta af þessari flottu veislu hjá þér hjá henni tengdamömmu þinni. Vona að aðgerðin gangi vel hjá Vigfúsi og ég veit að þú sinnir honum vel, hann er sko vel giftur. Láttu okkur heyra frá um viðtalið Margith mín. Bestu kveðjur kossar og klemm til ykkar allra.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 16.11.2008 kl. 20:29
Til hamingju með afmæli barnanna þinna. - Mikill snillingur ertu stelpa, 10 í einkunn, þú ert algjör snillingur. - Vigfús þú verður að setja viðtalið við hana á bloggið þegar það kemur út. -. Og hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur Margith. - Vonandi gengur Vigfúsi vel í aðgerðinni. Kær kveðja til þín og þinna Margith.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.11.2008 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.