Magnað Maiden Tónleikar
28.7.2008 | 18:36
Í gær vorum við hjónin á Iron Maiden tónleikum í Horsens. Uppáhalds hljómsveitinni hjá Vigfúsi manni mínum og mér. Hann bauð mér og bróður mínum Niels á þessa hreint frábæru tónleika. Hann var búinn að kaupa VIP miða fyrir miðju og fremst við sviðið þessi elskan. Foreldar mínir pössuðu börnin allan sunnudaginn og hálvan mánudag, og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Ferðin byrjaði með lest kl.13, og vorum við í Horsens um kl 14. Svæðið opnaði ekki fyrr enn kl 18.00, svo við notuðu tíman til að rölta aðeins í bænum, fengum okkur öl og keyptum Iron Maiden boli. Hitinn lá um 31 gráðu í skugganum og enginn var vindurinn, einn kaldur drykkur í skugganum var snild. Uþb. 25000 voru mætt á svæðið á tónleikana, og var skapið gott á fólki. Þar voru fólk úr öllum norðurlöndum, og við mættu meira að segja fleiri íslendingum, en þó fleiri kunningum og vinum frá Færeyjum. Tónleikarnir byrjuðu með Lauren Harris, sem er dóttir Steve Harris (bassaleikarinn í Maiden), og kláraði hún siga bara frábært. Avenged Sevenfold spilaði svo rétt á eftir, og er þetta hljómsveit sem ég get mælt með, alveg frábær tónlist. Við hjónin voru semsagt stödd í fremstu röð við girðinguna með besta útsýni, alveg frábært enn á tíma ansi heitt í þessari sól og hita. Lauren Harris byrjaði kl. 19:20. Avenged Sevenfold byrjaði kl. 20:30 og Iron Maiden kom á svið kl. 21:30 og svo fór allt í gang, þeir höfðu öll þrjú vélmennin með + eld dæmin og sprengingar, það er lengi að standa, enn eins betur fer fengum við reglulega vatn frá öryggisvörðunum. Tónleikunum lauk svo um miðnætti. Iron Maiden stóðu sig alveg frábærlega og Bruce Dickinson saung og öskraði með snilld eins og hann einn getur, hreint magnað. Þetta var bara besta tónlista upplifun, það verð ég að segja. Þeir spiluðu öll sín bestu lög, nefni nokkur en ekki öll:
Aces High
2 Minutes To Midnight
The Trooper
Wasted Years
Children Of The Damned
The Number Of The Beast
Run To The Hills
Phantom Of The Opera
The Evil That Men Do
Wrathchild
Can I Play With Madness
Powerslave
Hallowed Be Thy Name
Iron Maiden
Magnaðir tónleikar, gerast varla betri. Peningana virði að sjá tónleikana Somewhere Back In Time, European Tour 2008.
Athugasemdir
Sem sagt ,,,,Rómantísk stund með Iron Maiden,,,,,
Ég hef sjálfur séð Maiden tvisvar (Bæði skiptin hér á fróni)og skemmti mér konunglega í bæði skiptin mjög vel, enda frábær hljómsveit hér á ferð.
Þráinn Maríus (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 10:18
Gaman fyrir ykkur að geta farið saman á þessa tónleika. Við erum komin heim úr Kjósinni og kveðja til ykkar frá fjölskyldunum sem þar voru mættar að gleðjast saman.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 29.7.2008 kl. 21:34
Hæ hæ. Gaman hjá ykkur og veit að þið njótið þess að vera saman Það báðu allir rosalega vel að heilsa úr kjósinni Bjarmi frændi er að flytja út hann er að fara í skóla til Odense svo ekki verður langt á milli ykkar Njótið svo það sem eftir er af sumrinu Sólarkveðjur frá suðurnesjum
Hrönn Jóhannesdóttir, 1.8.2008 kl. 10:34
Vá en spennandi, gott að þið skemmtuð ykkur vel.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.8.2008 kl. 00:59
Já að fara saman til svona tónleika er æðislegt . Takka kærlega fyrir kveðjuna, sakna ykkur voða mikið .
Margith Eysturtún, 2.8.2008 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.